Hvað ert þú að gera á minni síðu????
Aðrir bloggarar!
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan
03.10.2007 17:41:05 / ninaaydin

Ný síða.

Hæhæ, ég er farin að blogga annarstaðar.

 

http://www.yuwie.com/jonina

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:14:17 / ninaaydin

Jæja...

Þá er ég loksins byrjuð í skóla, skráði mig reyndar svolítið seint en það var allt í lagi. Það er búin að vera langþráð ósk að skella sér í sjúkraliðann og nú lét ég loksins verða ef því. Vantar enn einhverjar bækur sem eru ekki til hérna, en það hlýtur að reddast einhvernvegin. Annars er bara allt gott að frétta af okkur hérna fyrir vestan. Jakobi gengur vel í skólanum og Camilla byrjar í leikskólanum aftur 1 október. Ætla að sækja svo um dagmömmupláss fyrir Ólann minn og drífa mig svo út á vinnumarkaðinn, (ef hann er einhver). En ég hlýt nú að finna eitthvað trúi ekki öðru. Stefán fer út á sjó á föstudaginn og kemur ekki aftur fyrr en í desember:( Þannig að nú bíða mín 2 mánuðir einstæð með 3 börn og rottweilerinn minn. Ekkert spennandi ef ég á að segja eins og er en svona verður þetta bara að vera. Við erum búin að vera rosa dugleg að breyta íbúðinni okkar og erum búin að taka alla ljóta panelinn og setja plötur upp og mála, svo erum við búin að parketleggja meiri hlutann og eigum eftir að fínesera, eins og t,d setja lista og klár að fínmála niður við gólfin og svona. Íbúðin verður æðisleg þegar hún er tilbúin og er orðin æðislega kósý nú þegar.

 

Jæja ætla að láta þetta gott heita í bili en læt þennann brandara fylgja með;0)

 

Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu.
Hún var búin að setja 3 lítra af léttmjólk í körfuna ásamt
1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa,
1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni.
Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði
þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa
strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega: "Þú ert örugglega
einhleyp"! Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en
jafnframt fannst henni athugasemdin skondin þar sem það var vissulega
rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og
furðaði sig á hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu
af þessum ósköp venjulegu innkaupum. Forvitnin varð henni um megn svo hún
sagði: " Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu
séð það??" . . .




















og drukkni maðurinn svaraði:


" Af því að þú ert ljót

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 16:02:27 / ninaaydin

Jólakaka að mínu skapi ;0)

1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand

Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra skál.
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
Hellið í einn bolla og drekkið.
Endurtakið.
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla.
Slökkvið á hrærivélinni.
Brjótið tvær skurnir og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga magnið. Næst, sigtið 2 bolla af salti.
Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
Hendið skálinni út um gluggann.
Athugið Grandið aftur.
Farið að sofa.

» 0 hafa sagt sína skoðun